Slumdog millionaire eftir Vikas Swarup í bíó.
Nú hefur þessi saga verið kvikmynduð og myndin er sýnd í kvikmyndahúsum
borgarinnar. Ég fór að sjá hana með hálfum huga, því oft valda þær
kvikmyndir vonbrigðum sem byggðar eru á metsölubókum. Kvikmynd
er ólíkur frásagnarmiðill og hefur aðrar áherslur. Mikilvægi þess
sem augað nemur og eyrað er hægt að leika sér með í kvikmyndun en
rithöfundurinn hefur sína frásagnargáfu til að spila á
hljómborð tilfinninga lesandans. Útkoman verður allt
annarskonar listaverk.
Myndin varð sigurvegari Golden Globe verðlaunanna núna 2009.
Söguþráður kvikmyndarinnar: hinn 18 ára gamli Jamal Malik er á
sigurbraut í indversku útgáfunni af “Viltu vinna milljón?”. Hann þarf
bara að svara einni spurningu í viðbót til að vinna 20 milljónir þegar
gert er hlé á upptökum þáttarins yfir nótt. Þá er lögreglan kölluð til
því mörgum þykir of ótrúlegt að munaðarleysinginn Jamal, sem ólst upp í
fátækrahverfum Mumbai, skuli komast lengra í þættinum en betur
menntaðir, greindari og ríkari þátttakendur en hann. Er Jamal
svindlari? Eða er það hrein tilviljun að hann fékk spurningar sem hann
kunni svörin við; svör sem hann hefur lært á sinni viðburðaríku ævi.
Þessar vangaveltur skýrast þegar Jamal segir sögu sína og stóra
spurningin er: býr ævisaga Jamal yfir svarinu við síðustu spurningunni
í þættinum?
Leikstjórar: Danny Boyle & Loveleen Tandan
Handrit: Simon Beaufoy & Vikas Swarup
Leikarar: Dev Patel, Anil Kapoor, Saurabh Shukla, Rajendranath Zutshi & fl.
Athugasemdir