Veðurútlit helgina 19. - 21. júní
Breytingar frá degi til dags og engin sérleg hlýindi
Föstudagur 19. júní:
Þurrt
að mestu á landinu, þó lítilsháttar væta sums staðar norðaustanlands.
Léttskýjað verður hins vegar sunnanlands og vestan. Frekar svalt í
veðri og hitinn ekki nema 10 til 14 stig. Enn svalara fyrir norðan, og
ekki nema 4 til 7 stig við sjáavarsíðuna norðan- og austanlands. Það
er gert ráð fyrir því að strekkingur verði, einkum framan af degi
austantil á landinu, en mun hægri og allt að því logn undir kvöldið
vestanlands.
Laugardagur 20. júní:
Snýst hægt og bítandi til
suðlægrar vindáttar með hlýnandi veðri, sérstaklega norðaustan- og
austanlands. Skýjað og lítilsháttar væta vestanlands og á Vestfjörðum
framan af degi, en annars þurrt og léttir til austan- og
norðaustanlands. Þar kemst hitinn í 16-18 stig, en annars þetta 10-14.
Fljótlega eftir hádegi nálgast úrkomuskil frá lægð landið suðvestanvert
og er því spáð að rigning verði að mestu samfelld suðvestan- og
vestanlands þegar líður á daginn og eins um kvöldið og meira og minna
alla nóttina. Ekki hvasst með þessu, en sums staðar þó blástur allt að
8-13 m/s af suðaustri um kvöldið, þá um landið suðvestanvert.
Sunnudagur 21. júní:
Aðfaranótt
sunnudagsins má reikna með vætu um mest allt land um leið og skilin
fara yfir landið. Í kjölfar þeirra snýst vindur til suðvestan- og
vestanáttar. Strekkingur vestantil og þar skúrir en norðanlands austan
Skagafjarðar, svo og um allt austanvert landið um Mýrdalssand styttir
upp þegar kemur fram á morguninn og ætti að sjást til sólar. Hiti
vart hærri en þetta 9 til 15 stig.
Athugasemdir