Aðalfundur Foreldrafélags Grunnskóla FB

Aðalfundur Foreldrafélags Grunnskóla FB Aðalfundur Foreldrafélags Grunnskóla Fjallabyggðar var haldinn síðastliðinn þriðjudag.

Fréttir

Aðalfundur Foreldrafélags Grunnskóla FB

Tveir stjórnarmenn
Tveir stjórnarmenn
Aðalfundur Foreldrafélags Grunnskóla Fjallabyggðar var haldinn síðastliðinn þriðjudag.

Fundurinn var vel sóttur og voru gagnlegar umræður um ýmis mál, auk hefðbundinna aðalfundarstarfa.

Eitt þeirra mála sem bar á góma var umferðaröryggi skólabarna í Fjallabyggð.  

Fram komu nokkrar áhyggjur af færð fyrir gangandi vegfarendur þegar snjórinn er kominn, og snjómokstur hafinn.  Félagið hyggst þrýsta á bæjaryfirvöld um að snjómokstur verði með þeim hætti að umferðaröryggi ungra gangandi vegfarenda verði í lagi.

Í lokin fóru fundargestir í skoðunarferð um nýja skólahúsið í Ólafsfirði, en framkvæmdir eru nú á lokastigi og gert er ráð fyrir að bæjarbúum verði boðið að skoða það fljótlega.

 


Myndir og texti:  GSH

Athugasemdir

23.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst