Ársfundur Síldarminjasafnsins

Ársfundur Síldarminjasafnsins Ársfundur Síldarminjasafnsins var haldinn í gærkvöldi, 11. júní kl. 20:00. Á fundinum var kynntur ársreikningur og gert

Fréttir

Ársfundur Síldarminjasafnsins

Ársfundur Síldarminjasafnsins var haldinn í gærkvöldi, 11. júní kl. 20:00. Á fundinum var kynntur ársreikningur og gert grein fyrir starfsemi safnsins síðasta ár auk þess sem ræddar voru breytingar á starfsliði safnsins og rekstrar- og verkefnaáætlun ársins 2009 kynnt af forstöðumanni.


Á fundinn mættu: Guðmundur Skarphéðinsson formaður, Margrét Hallgrímsdóttir meðstjórnandi, Jónína Magnúsdóttir ritari, Örlygur Kristfinnsson forstöðumaður safnsins, Aníta Elefsen starfsmaður safnsins, Steinunn Sveinsdóttir, Sigurður Hafliðason, Hinrik Aðalsteinsson, Sturlaugur Kristjánsson, Bjarni Þorgeirsson og Ólafur Þór Ólafsson skrifstofustjóri Fjallabyggðar.

Formaður bauð fundarmenn velkomna, kannaði lögmæti fundarins og kynnti dagskrá hans.

1.    Ársreikningur Síldarminjasafns Íslands ses fyrir árið 2008, lagður fram til kynningar.
Formaður fór yfir ársreikninginn og gaf orðið laust. 

2.    Kynning á starfsemi Síldarminjasafns Íslands ses 2008.
Forstöðumaður safnsins kynnti starf safnsins. Umræður urðu um starfið og lýsti  Margrét Hallgrímsdóttir ánægju sinni með safnið, uppbyggingu þess og árgangur af  safnastarfinu. Hún óskaði safninu áframhaldandi góðs gengis. Fundarmenn lýstu yfir ánægju með að hægt verður að fjölga í starfsliði safnsins innan skamms, þótt um tímabundna ráðningu verði að ræða. 

3.    Skipan í stjórn
Tilnefndir eru; Guðmundur Skarphéðinsson f.h. FÁUM og Hinrik Aðalsteinsson til vara. Jónína Magnúsdóttir er tilnefnd fyrir Fjallabyggð og Sverrir Sveinsson til vara.
Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður tilnefnir Ágúst Georgsson starfsmann Þjóðminjasafns Íslands og Önnu Lísu Rúnarsdóttur til vara.

4.    Rekstrar- og verkefnaáætlun
Forstöðumaður kynnti rekstrar- og verkefnaáætlun Síldarminjasafns Íslands ses fyrir 2009.

5.    Önnur mál
Forstöðumaður sagði frá ársráðningu tveggja nýrra starfsmanna sem taka til starfa við safnið um mitt sumar. Unnið er að ráðningu þjóðháttarfræðings og trésmiðs.
Forstöðumaður þakkaði Margréti Hallgrímsdóttur fyrir vel unnin störf í þágu safnsins, setu í stjórninni og væntir góðs af áframhaldandi samstarfi.

Athugasemdir

23.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst