Góð aðsókn á Síldarminjasafnið.
sksiglo.is | Aflafréttir | 12.07.2011 | 13:25 | Guðmundur Skarphéðinsson | Lestrar 48 | Athugasemdir ( )
Aðsókn á Síldarminjasafnið er mikil um þessar
mundir, en yfir 7.500 gestir hafa heimsótt safnið það sem af er árinu. Á
sama tíma í fyrra voru gestir orðnir rúmlega 5.000 og er því um
verulega aukningu að ræða.
Heimsóknir erlendra ferðalanga hafa aukist nokkuð, en mest hefur aukningin orðið meðal íslenskra ferðamanna – sem eru margir hverjir líklega að heimsækja Siglufjörð vegna tilkomu Héðinsfjarðarganga.
Síldarminjasafnið er opið alla daga frá kl. 10:00 -18:00. Auk þess býður safnið gestum að fylgjast með síldarsöltun og dansa við harmonikkuleik alla laugardaga kl. 15:00. Vert er að minnast á að allir lögskráðir íbúar Fjallabyggðar fá ókeypis aðgang að safninu, og því tilvalið að heimsækja safnið.
Texti og mynd: Anita.
Athugasemdir