Hreystidagur á síðasta kennsludegi grunnskólans

Hreystidagur á síðasta kennsludegi grunnskólans   Síðasti kennsludagur á hinu fyrsta starfsári Grunnskóla Fjallabyggðar var í gær, föstudaginn 3. júní,

Fréttir

Hreystidagur á síðasta kennsludegi grunnskólans

 

Síðasti kennsludagur á hinu fyrsta starfsári Grunnskóla Fjallabyggðar var í gær, föstudaginn 3. júní, og af því tilefni komu allir nemendur skólans saman á Hóli þar sem farið var í ýmsa leiki og þrautir. Þrátt fyrir kalsaveður skemmtu allir sér vel og krakkarnir voru sérlega dugleg að sinna sínum viðfangsefnum.þh

 

Í hádeginu var grillað ofan í mannskapinn og runnu pylsurnar ljúflega niður enda allir svangir eftir útiveruna.

Það var hreystiteymi skólans sem skipulagði dagskrá dagsins sem fól m.a. í sér boðhlaup með ýmsum afbrigðum, ruðning – öðru nafni amerískan fótbolta, ratleik í skógræktinni, tilsögn í golfi og fleira skemmtilegt.

Þriðjudaginn 7. júní verður skólanum svo formlega slitið.


Athugasemdir

23.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst