Jónsmessuhátíð Síldarminjasafnsins 2009

Jónsmessuhátíð Síldarminjasafnsins 2009 Jónsmessuhátíð Síldarminjasafnsins verður haldin laugardaginn 20. júní nk.Þá verða hinir vellukkuðu tónleikar Á

Fréttir

Jónsmessuhátíð Síldarminjasafnsins 2009

Jónsmessuhátíð Síldarminjasafnsins verður haldin laugardaginn 20. júní nk.
Þá verða hinir vellukkuðu tónleikar Á frívaktinni endurteknir nú með Ragga Bjarna sem aðal söngvara. Um miðjan dag verður sagnamannafundur þar sem að sagðar verða sögur úr síldarbænum. Í tengslum við tónleikana gefst gestum færi á að senda inn kveðjur sem lesnar verða með óskalögum. Vinsamlegast sendið kveðjur á netfangið: safn@sild.is fyrir fimmtudaginn 18. júní.
Nánar um dagskrá Jónsmessuhátíðarinnar hér á eftir.

Bátahúsið kl. 16 – Sagnamannaþing - Sögur úr síldarbænum.
Sögumenn: Ragnar Bjarnason, Ragnar Páll Einarsson, Hannes Baldvinsson, Páll Helgason, Örlygur Kristfinnsson og etv. fleiri
Fundarstjóri: Ómar Hauksson.
 
Bátahúsið kl. 20.30 – Á frívaktinni - óskalagaþáttur sjómanna “í beinni útsendingu”
Hljómsveitin Stúlli og Stúararnir með Ragga Bjarna og gestasöngvurunum Mundínu Bjarnadóttur, Birgi Ingimarssyni, Birni Val Gíslasyni, Birni Sveinssyni, Friðfinni Haukssyni og Þórarni Hannessyni.
Hljómsveitina skipa: Sturlaugur Kiristjánsson hjarmónika og hljómborð, Ragnar Páll gítar, Óttar Sæmundsen kontrabassi og Dúi Benediktsson trommur og söngur.
Bryggjusöngvar - fjöldasöngur.

Athugasemdir

23.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst