Metumferð um göngin um helgina.
Um helgina fóru 887 bílar að meðaltali á
dag um Héðinsfjarðargöng, frá föstudegi til sunnudags, samkvæmt upplýsingum frá
Friðleifi Inga Brynjarssyni verkefnastjóra hjá umferðardeild Vegagerðarinnar á
Akureyri.
Þetta er meira en fyrra helgarmet sem er síðan um páska, 864 bílar á dag. Í gær, sunnudaginn 3. júlí, fóru 987 bílar um Héðinsfjarðargöng, sem er heldur minna en á laugardaginn um páskana þegar 1010 bílar fóru um gönginn. Það er met frá því mælingar hófust um miðjan október 2010, nokkru eftir að göngin voru vígð.
Umferðin í júní var mjög mikil. Fyrstu helgina voru bílarnir 765 á dag, aðra helgina 647, þriðju helgina 714 og fjórðu helgina 735. Fyrri hluta ársins var meðalumferðin 470 bílar á dag sem er þriðjungi meira en Vegagerðin áætlaði þegar ráðist var í gerð Héðinsfjarðarganga.
Það verður fróðlegt að fylgjast með umferðarteljaranum í Héðinsfirði næstu daga og vikur. Þjóðlagahátíðin hefst á miðvikudaginn, Síldarævintýrið verður í lok mánaðarins og Pæjumótið í ágúst. Einnig má búast við að margir þeirra sem taka þátt í Nikulásarmótinu í Ólafsfirði um miðjan júlí leggi leið sína til Siglufjarðar svo og þátttakendur í Fiskideginum mikla á Dalvík í ágúst.
Hvað sem öðru líður er greinilegt að Héðinsfjarðargöng hafa komið að góðum notum.
Fyrsta helgin í júlí er að verða ein mesta ferðahelgi ársins. Mikil umferð var um Héðinsfjörð um þessa helgi í góðu veðri, enda tvö árgangamót og eitt ættarmót á Siglufirði.
Texti: Jónas Ragnarsson
Myndir: GJS
Athugasemdir