Níu ára ökumaður

Níu ára ökumaður Lögreglan í Fjallabyggð stöðvaði för ungs ökumanns eftir hádegið í dag eftir að hafa fylgt bifreið unga ökumannsins eftir í gegnum

Fréttir

Níu ára ökumaður

Níu ára ökumaður var stöðvaður af lögreglu í dag eftir að hafa ekið í gegnum vesturgöng Héðinsfjarðarganga mbl.is/Sigurður Ægisson
Níu ára ökumaður var stöðvaður af lögreglu í dag eftir að hafa ekið í gegnum vesturgöng Héðinsfjarðarganga mbl.is/Sigurður Ægisson
Lögreglan í Fjallabyggð stöðvaði för ungs ökumanns eftir hádegið í dag eftir að hafa fylgt bifreið unga ökumannsins eftir í gegnum Héðinsfjarðargöng. Í ljós kom að ökumaðurinn var aðeins níu ára gamall og var það afi hans á níræðisaldri sem leyfði stráksa að keyra frá Héðinsfirði til Siglufjarðar.
Að sögn lögreglunnar þótti ökulag bifreiðarinnar eitthvað rykkjótt og ákvað að kanna málið. Þegar lögreglan stöðvaði för bifreiðarinnar sá hann lítinn pilt stökkva úr ökumannssætinu og aftur í.Aftur á móti sat afi drengsins í framsætinu og viðurkenndi að hafa leyft drengnum,sem með réttu ætti að sitja á púða aftur í,að keyra.

Athugasemdir

23.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst