Nýr bátur
sksiglo.is | Aflafréttir | 25.06.2010 | 08:25 | Síldarminjasafnið | Lestrar 49 | Athugasemdir ( )
Nýr bátur, Svala SI 51 bættist í bátaflota Siglfirðinga nú í vor.
Eigandi Svölu er Jónbjörn Óttarsson sem fluttist með fjölskyldu sinni
til Siglufjarðar í fyrra.Hann er vélstjóri að mennt og gamalreyndur í trillubátaútgerð, var á sjó öll sín unglingsár og átti síðar bát sem hann gerði út frá Bakkafirði. Svala sem er fimm tonna breyttur Flugfiskur stundar veiðar eftir strandveiðikerfinu og hefur aflinn verið sæmilegur að undanförnu. Þess má geta í framhjáhlaupi að eiginkona Jónbjörns er Rósa M. Húnadóttir þjóðfræðingur og safnvörður á Síldarminjasafninu.
Athugasemdir