Skíðafélag Siglufjarðar 90 ára
Siglufjörður hafði þá sérstöðu að í þessu litla
bæjarfélagi störfuðu tvö skíðafélög um árabil. Fyrsta skíðafélagið var stofnað
árið 1920 og markaði það upphaf skíðaíþróttarinnar sem keppnisgreinar. Sumarið
1936 varð klofningur innan félagsins og stofnað var annað félag sem hlaut
nafnið Skíðafélagið Siglfirðingur, síðar nefnt Skíðaborg. Árið 1952 voru
félögin sameinuð í Skíðafélag
Siglufjarðar – Skíðaborg.
Í tilefni af 90 ára afmælinu var ákveðið að opna litla sýningu í glugga KS skrifstofunnar og auk þess er myndasýning í Sparisjóðnum til heiðurs skíðaíþróttinni á Siglufirði.
Athugasemdir