Skíðafélag Siglufjarðar 90 ára

Skíðafélag Siglufjarðar 90 ára Skíðafélag Siglufjarðar var stofnað 8. febrúar 1920 og fagnar því 90 ára afmæli í dag. Siglfirðingar sköpuðu sér góðan

Fréttir

Skíðafélag Siglufjarðar 90 ára

Skíðafélag Siglufjarðar var stofnað 8. febrúar 1920 og fagnar því 90 ára afmæli í dag. Siglfirðingar sköpuðu sér góðan orðstír fyrir afrek sín á skíðum og áttu þeir marga af fremstu skíðamönnum landsins á 20. öld.

 

Siglufjörður hafði þá sérstöðu að í þessu litla bæjarfélagi störfuðu tvö skíðafélög um árabil. Fyrsta skíðafélagið var stofnað árið 1920 og markaði það upphaf skíðaíþróttarinnar sem keppnisgreinar. Sumarið 1936 varð klofningur innan félagsins og stofnað var annað félag sem hlaut nafnið Skíðafélagið Siglfirðingur, síðar nefnt Skíðaborg. Árið 1952 voru félögin sameinuð í  Skíðafélag Siglufjarðar – Skíðaborg.

 

Í tilefni af 90 ára afmælinu var ákveðið að opna litla sýningu í glugga KS skrifstofunnar og auk þess er myndasýning í Sparisjóðnum til heiðurs skíðaíþróttinni á Siglufiirði.

 

 


Athugasemdir

23.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst