Sparisjóður Ólafsfjarðar sameinast Arion banka
sksiglo.is | Aflafréttir | 19.09.2012 | 13:14 | Guðmundur Skarphéðinsson | Lestrar 40 | Athugasemdir ( )
Unnið er að samruna Sparisjóðs Ólafsfjarðar og Arion banka og mun hann ganga í gegn síðar í mánuðinum. Samruninn verður með þeim hætti að engin röskun á að verða á þjónustu við viðskiptavini Sparisjóðsins sem áfram munu geta nýtt sín greiðslukort og þá þjónustuþætti sem þeir voru með hjá Sparisjóði Ólafsfjarðar. Markmiðið er að veita íbúum á Ólafsfirði áfram vandaða og fjölbreytta fjármálaþjónustu.
Athugasemdir