Veiðislútt við Fljótaá

Veiðislútt við Fljótaá Eins og kemur fram á vef Stangveiðifélags Siglufjarðar, www.salmon.is, þá mun félagið halda veiðislútt við Fljótaá  næstkomandi

Fréttir

Veiðislútt við Fljótaá

Eins og kemur fram á vef Stangveiðifélags Siglufjarðar, www.salmon.is, þá mun félagið halda veiðislútt við Fljótaá  næstkomandi sunnudag eftir hádegi.

Áætlun er um að hittast að Hvammi í Fljótum á laugardagskvöldinu og borða saman fyrir þá sem það vilja og sofa þar. Við höfum alla ánna til umráða á sunndeginum eða frá kl. 15 til 21. Einnig er ráðgert að halda fljótlega haustfund eins og var alltaf gert hér í eina tíð. Áhugasamir félagar vinsamlega tilkynnið þátttöku til Gulla Stebba í síma 868-7291 fyrir kl.15 á laugardaginn. Á vef angling.is má sjá að 8. september var búið að veiða 255 laxa í Fljótaá og má því ætla að það styttist verulega í 300 laxa markið.

Athugasemdir

23.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst