Vigdís vígir Ljóðasetrið á Siglufirði á föstudaginn

Vigdís vígir Ljóðasetrið á Siglufirði á föstudaginn Frétt frá Ljóðasetri Íslands, 3. júlí 2011 Upplýsingar veita Þórarinn Hannesson í síma 865 6543

Fréttir

Vigdís vígir Ljóðasetrið á Siglufirði á föstudaginn

Frétt frá Ljóðasetri Íslands, 3. júlí 2011

Upplýsingar veita Þórarinn Hannesson í síma 865 6543 og Guðmundur Skarphéðinsson í síma 892 1846

 

 Ljóðasetur Íslands á Siglufirði verður formlega tekið í notkun föstudaginn 8. júlí við hátíðlega athöfn sem hefst kl. 15. Vigdís Finnbogadóttir fyrrverandi forseti Íslands vígir setrið, en hún er þekkt fyrir áhuga sinn á ljóðum. Þórarinn Eldjárn og fleiri ljóðskáld munu lesa upp úr verkum sínum og flutt verður áður óbirt ljóð eftir Matthías Johannessen, sem hann hefur afhent setrinu. Þá munu kvæðamenn kveða.

 

Á Ljóðasetri Íslands eru hátt á annað þúsund íslenskar ljóðabækur, gamlar og nýjar. Flestar hafa þær verið gefnar og verður getið um gefendur við vígsluna, meðal annars eina stórgjöf. Gestir setursins geta fengið að lesa bækurnar í hlýlegu umhverfi og fengið sér kaffi eða te í leiðinni. Á veggspjöldum er rakin þróun íslenskrar ljóðlistar og sýndir eru gripir sem tengjast sögunni. Á hverjum degi verður boðið upp á ýmsa viðburði svo sem ljóðalestur, fyrirlestra og flutning á tónlist sem tengist ljóðum.

 

Ljóðasetrið á Siglufirði er að Túngötu 5. Það verður opið alla daga í sumar frá kl. 14 til kl. 18. Þar er hægt að fá keyptar ljóðabækur og eru sumar þeirra fágætar. Forstöðumaður safnsins er Þórarinn Hannesson.


Athugasemdir

23.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst