Sögufrćg SJÓFLUGVÉL

Sögufrćg SJÓFLUGVÉL Ţađ er svo sem ekki algengt ađ sjá fallega sjóflugvél hér í firđinum fagra en hér áđur fyrr voru svipađar vélar notađar viđ

Fréttir

Sögufrćg SJÓFLUGVÉL

De Havilland Beaver on Floats flýgur yfir Sigló
De Havilland Beaver on Floats flýgur yfir Sigló

Ţađ er svo sem ekki algengt ađ sjá fallega sjóflugvél hér í firđinum fagra en hér áđur fyrr voru svipađar vélar notađar viđ síldarleit.

Ţessi fallega vél er af gerđinni De Havilland Beaver on Floats árgerđ 1960 og er hún í eigu Argríms Jóhannssonar flugkappa og flugfrumkvöđuls. 

Hann og sonur hans Gunnar skreppa hingađ annarslagiđ frá Akureyri og koma viđ hjá Valgeiri Sigurđssyni vini sínum sem hefur nú byggt sérstaka flotbryggju fyrir framan  veitingastađ sinn Harbour House Café, svo nú getur Argrímur lagt vélinni ţar og fengiđ sér fiskisúpu áđur en hann fer heim aftur.



Fréttaritari náđi ađ spjalla smástund viđ Arngrím og sagđi hann sögu ţessarar sjóflugvélar í stuttu máli. Vélin var lengst af í eigu Kanadíska hersins og var notuđ ţar sem vinnuhestur og einskonar flugtraktor, enda eru ţetta sterkar og áráđanlegar vélar. Hún var síđar seld til Ameríku og síđan var hún í vinnu í Kenýa ţar sem hún brotlendir og skemmdist illa. Hún var ţá sett í flutninga gáma og send tilbaka til Ameríku og var ţar lengi í geymslu í ţessum gámum.

Ég keypti síđan vélina 2006 og var hún síđan endursmíđuđ árin 2006 - 2008 í Miniapolis , síđan flaug ég sjálfur vélinni heim til Íslands, en ţađ tók 18 daga, enda er ţetta ekki hrađskreiđ vél.

Fréttaritari hafđi heyrt orđróm á bćjarlínunni ađ ţessi vél ćtti sér líka ađra og merkilega sögu.

Nefnilega ađ sjálfur Harrisson Ford hefđi flogiđ ţessari vél í einni af Indíana Jones myndunum og ađ hún hefđi einmitt brotlent í Kenýa viđ upptöku myndarinnar. 

Arngrímur vildi ekkert tjá sig um ţetta en sagđi bara ađ hún yrđi seld til Ameríku bráđlega.

Takk fyrir spjalliđ og góđa ferđ heim til Akureyrar.

P.s. Ţeir sem vilja skreppa í flugtúr međ Arngrími í ţessari fallegu flugvél geta horft á myndband sem til er á Youtube en slóđinn ţangađ er:

https://www.youtube.com/watch?v=XIC5YaKZ9_k

Sjóflugvél Argríms Jóhannssonar lagt viđ flotbryggjuna hjá Harbour House Café.

Valgeir Sigurđsson, Gunnar Arngrímur Arngrímsson og Arngrímur Jóhannsson.

De Havilland Beaver on Floats árgerđ 1960 fljótandi viđ Síldarminjasafniđ fyrr í sumar.

Myndir og Texti:
Jón Ólafur Björgvinsson
Fréttasími: 842 - 0089 


Athugasemdir

29.mars 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörđur
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgiđ okkur á Facebook eđa Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst