Það er njósnað um okkur !

Það er njósnað um okkur ! 23 ungmenni frá öllum heimsins hornum hafa farið víða um okkar fagra fjörð og "njósnað" um okkur. Þau hafa aflað sér heimilda

Fréttir

Það er njósnað um okkur !

Hugmyndaveggur um Sigló og bæjarbúa
Hugmyndaveggur um Sigló og bæjarbúa

23 ungmenni frá öllum heimsins hornum hafa farið víða um okkar fagra fjörð og "njósnað" um okkur.

Þau hafa aflað sér heimilda með leiðsögutúrum, matarboðum hjá bæjarbúum og eigin heimildarvinnu.

Ég læddist inn í Alþýðuhúsið og njósnaði um þau líka.

Það fyrsta sem ég sá var stór speglaveggur sem var þakinn af hugmyndum um okkur Siglfirðinga, bæinn og líf okkar og drauma.

Ég heyrði líka eitthvað tal um að opna sjóræningja útvarpsstöð eða hreinlega taka yfir Trölli Radio. Hmm....

Á næstu dögum munu bæjarbúar sjá fólk vinna við allskyns sköpunarstörf út um allan bæ og á sunnudaginn fáum við loksins að sjá allt saman.

Spennandi.

Leynifundur og heilmiklar pælingar

Sköpunargleði. Allt á fullu.

Furðulegt smáhús ?

Myndir og Texti: NB

 


Athugasemdir

24.apríl 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst