Eiður Ágúst gerir það gott með Ourlives
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 19.11.2009 | 07:00 | | Lestrar 502 | Athugasemdir ( )
Eiður Ágúst Kristjánsson ( Sonur Kristjáns Elíassonar ( Elíasar Ísfjörð og Aðalheiðar Þorsteinsdóttur) og Lilju Eiðsdóttur er gítarleikari í hljómsveitinni Ourlives sem sendi á dögunum frá sér sína fyrstu plötu, We Lost the Race.

Eiður Ágúst á útgáfutónleikunum.
Með þessari heilsteyptu og metnaðarfullu plötu skjóta Ourlives sér beint í framlínu íslenskra tónlistarmanna. Platan hefur að geyma frábærar lagasmíðar og metnaðarfullar útsetningar sem hafa heillað hlustendur að undanförnu. Það er sjaldgæft að fyrsta plata hljómsveitar innihaldi jafn mörg lög sem hljómað hafa í útvarpi og þessi frumburður Ourlives. Lagið Núna var mest spilaða lagið á útvarpsstöðinni X-inu og hið vinsæla lag Out Of Place sat í fyrsta sæti vinsældarlista Rásar 2 og fór á topp X-Dominos listans. Plötunni fylgja 9 aukalög, eða svokallaðar B-hliðar. Þar er meðal er ábreiða Ourlives og Togga af laginu Þúsund sinnum segðu já, sem hefur hljómað á öldum ljósvakans um nokkurt skeið. Eins má þar finna lagið Sandra sem féll vel í kramið hjá íslenskum rokkunnendum. Upptökustjórn og hljóðblöndun var í höndum þeirra Barða Jóhannssonar og Styrmis Haukssonar.
Ourlives kom fram í beinni hjá Loga síðastliðinn föstudag (13. nóvember) og munu koma fram í Kastljósi í vikunni.
Viðtal við hljómsveitina í Fréttablaðinu HÉR
Diskurinn fæst á tónlist.is

Athugasemdir