Á Kambi

Á Kambi Á Kambi er bifreiðaverkstæði sem kennt er við Kamb og þar ræður ríkjum Skarphéðinn Fannar Jónsson. Nóg hefur verið að gera hjá þeim í sumar og

Fréttir

Á Kambi

Flottir strákarnir á Kambi
Flottir strákarnir á Kambi
Á Kambi er bifreiðaverkstæði sem kennt er við Kamb og þar ræður ríkjum Skarphéðinn Fannar Jónsson. Nóg hefur verið að gera hjá þeim í sumar og lítur bara vel út sagði Skarphéðinn. Lágheiðin hefur fært okkur talsverða vinnu við að gera við dekk og vegurinn út að Hóli var ekki slæmur viðskiptalega séð segir Skarðhéðinn glottandi.
Þeir eru tveir sem vinna á verkstæðinu og rétt að kynna Hilmar Hreiðarsson en að eigin sögn er hann sá fallegri á Kambi. Drengirnir voru himinlifandi að sjá siglo.is mæta á svæðið því það þíðir yfirleitt verkefni hjá þeim.

Skarphéðinn stillti sér upp fyrir myndatöku.



Hilmar hinn fagri.



Hilmar á kafi í vélarsalnum.




Athugasemdir

25.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst