Bændadagar hefjast í dag
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 22.10.2009 | 13:46 | | Lestrar 424 | Athugasemdir ( )
Skagfirskir Bændadagar hefjast í dag í Skagfirðingabúð, en þeir munu vera orðnir fastur liður á haustin og er ýmislegt matakyns í boði á góðu verði.
Bændur munu kynna vörur sínar og bjóða fólki upp á „smakk“ milli klukka 14 og 18 báða dagana, en þeir standa til kl 18 á morgun. Þessir dagar eru gríðarlega vinsælir hjá fólki sem notar tækifærið og hittir mann og annan og gerir góð kaup í leiðinni. Að sögn Árna Kristinssonar eru tilboðin þegar byrjuð þó svo að kynningarnar hefjist ekki fyrr en klukkan tvö. „Allt er komið á fullt“ segir Árni og býður alla velkomna á Bændadaga.

Athugasemdir