Bandýleikur
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 24.11.2009 | 12:00 | | Lestrar 488 | Athugasemdir ( )
Starfsmannafélag Sparisjóðsins stóð fyrir íþróttadegi fjölskyldunnar síðast liðinn laugardag. Þetta er í annað sinn sem slíkur dagur er haldinn og stefnt er að fleirum í framtíðinni enda mikil ánægja meðal starfsmanna og ekki síst barna þeirra. Mikil spenna var í krökkunum vegna Bandýleiks en þau áttu harm að hefna því fullorðnir sigruðu síðast og nú yrðu skorin jöfnuð.
Skemmst er frá því að segja að krakkarnir sigruðu 10-9 í hörku leik þar sem nokkrir fullorðnir voru sendir í kælingu eftir grófan leik.
Myndir HÉR
Skemmst er frá því að segja að krakkarnir sigruðu 10-9 í hörku leik þar sem nokkrir fullorðnir voru sendir í kælingu eftir grófan leik.
Myndir HÉR
Athugasemdir