Báturinn strandaði í göngunum!

Báturinn strandaði í göngunum! Fyrirtækið Siglufjarðar Seigur tók á móti nýjum bátsskrokki sem er í eigu Freys Steinars Gunnlaugssonar í gær. Þeir koma

Fréttir

Báturinn strandaði í göngunum!

Fyrirtækið Siglufjarðar Seigur tók á móti nýjum bátsskrokki sem er í eigu Freys Steinars Gunnlaugssonar í gær. Þeir koma til með að fullklára bátinn  sem mun sennilega  heita Oddur á Nesi.
Skrokkurinn er 11.6 m á lengd og 3.9 m á breidd og vegur um 900 kg. Reiknað er með að báturinn verði tilbúinn í desember. Það gekk ekki þrautalaust fyrir sig að fá bátinn hingað til Siglufjarðar frá Akureyri. Flytja átti hann í gegnum Ólafsfjarðargöng (Múlagöng), en þegar til kom strandaði báturinn í göngunum og það tók Ragnar Hansson um 40 mínútur að komast aftur út úr göngunum með ferlíkið. Það var því ekkert annað í stöðunni en að fara til baka og yfir Öxnadalsheiðina, svo yfir Lágheiðina inn í Ólafsfjörð og að lokum í gegnum Héðinsfjarðargöng hingað til Siglufjarðar. Þannig að báturinn er orðinn víðförull á vegum landsins, kannski ekki alveg það sem til stóð!
Myndir HÉR



Athugasemdir

25.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst