Birkir Jón sigurvegari

Birkir Jón sigurvegari Birkir Jón Jónsson, alþingismaður, sigraði í prófkjöri Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi. Kosið var um sæti 1 til 8 á

Fréttir

Birkir Jón sigurvegari

Birkir Jón Jónsson.
Birkir Jón Jónsson.
Birkir Jón Jónsson, alþingismaður, sigraði í prófkjöri Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi. Kosið var um sæti 1 til 8 á aukakjördæmisþingi á Egilsstöðum í dag. Birkir Jón hlaut 505 atkvæði í fyrsta sæti. Höskuldur Þórhallsson hlaut 647 atkvæði í 1.-2. sætið.
Hulda Aðalbjarnardóttir menningar- og fræðslufulltrúi Norðurþings varð í þriðja sæti en hún hlaut 509 atkvæði í 1.-4. sæti. Sigfús Karlsson, framkvæmdastjóri skipar fjórða sæti listans, hann hlaut 304 atkvæði í 1.-4. sæti.

Alls greiddu 928 atkvæði í prófkjörinu.

Verið er að kynna niðurstöður prófkjörsins á kjördæmisþinginu og í framhaldinu verður 20 manna framboðslisti kynntur flokksmönnum.

Framsóknarflokkurinn fékk þrjá menn kjörna í Norðausturkjördæmi í þingkosningunum vorið 2007.

Niðurstaða prófkjörs í sæti 1 - 8

1. Birkir Jón Jónsson, alþingismaður - 505 atkvæði í 1. sæti
2. Höskuldur Þór Þórhallsson, alþingismaður - 647 atkvæði í 1.-2. sæti
3. Huld Aðalbjarnardóttir menningar-og fræðslufulltrúi Norðurþings - 509 atkvæði í 1.-3. sæti
4. Sigfús Karlsson, framkvæmdastjóri - 340 atkvæði í 1.-4. sæti
5. Svanhvít Aradóttir, forstöðuþroskaþjálfi - 448 atkvæði í 1.-5. sæti
6. Hallveig Björk Höskuldsdóttir, leiðtogi í málmvinnslu Alcoa - 463 atkvæði í 1.-6. sæti
7. Þórarinn Ingi Pétursson, bóndi og tamningamaður - 497 atkvæði í 1.-7. sæti
8. Anna Kolbrún Árnadóttir, sérkennari - 397 atkvæði í 1.-8. sæti

Athugasemdir

15.ágúst 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst