CNN á Sigló
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 26.08.2009 | 11:00 | | Lestrar 826 | Athugasemdir ( )
Nancy og Bryant Cutter frá Charlotte í North Carolina á austurströnd Bandaríkjanna nutu lífsins á Harbour Cafee í vikunni. Nancy vinnur hjá CNN sem ferðamálafulltrúi.
Hún ferðast um heiminn og skrifar greinar um þá staði sem hún sækir heim, og mælir með þeim stöðum sem henni líst vel á. Áður en þau komu til Íslands var Nýja-Sjáland þeirra uppáhaldsland, en nú er Ísland númer eitt á listanum, en þau eru gjörsamlega heilluð af landinu. Héðan frá Siglufirði halda þau austur, þau ætla að keyra hringveginn á leið sinni um landið. Ísland fær eflaust góða umfjöllun á CNN, en áhugasamir geta fylgst með ferðalögum Nancy og Bryant‘s á www.cnn.com/travel.

Hjónin eru ákveðin í að koma aftur að ári. Bryant var áhugasamur um að eignast hús á Sigló

Girnilegur matur! Nancy var yfir sig hrifin af bleikjunni hjá Valgeiri

Athugasemdir