Einmenningur
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 28.04.2009 | 08:00 | | Lestrar 424 | Athugasemdir ( )
Félagar í Bridgefélagi Siglufjarðar taka ávalt mánudagskvöldin frá til að fara og spila brigde á loftinu í Skeljungshúsinu. Seinna kvöldið í einmenning var á dagskrá í gærkvöldi og mátti greina spennu milli félaganna Boga Sigurbjörns og Friðfinns Haukssonar.
Bogi sagðist vera með örugga forystu en kjúklingurinn væri þó að narta örlítið í hælana á sér. Siglfirðingar hafa löngum verið í fremstu röð bridgespilara á Íslandi og vonandi ná þau í Bridgefélagi Siglufjarðar að kenna ungu krökkunum okkar galdurinn við þessa göfugu íþrótt. Athygli vakti að tölva félagsins var að eldri gerðinni eða frá 1993 og hefur aldrei verið betri að sögn umsjónarmanns.
Myndir HÉR

Athugasemdir