Engin biðröð, rúta eða vesen

Engin biðröð, rúta eða vesen Það er ekki amalegt að geta stokkið upp í flugvél og flogið sjálfur með fjölskylduna í grill hjá mömmu og pabba á Sigló.

Fréttir

Engin biðröð, rúta eða vesen

Það er ekki amalegt að geta stokkið upp í flugvél og flogið sjálfur með fjölskylduna í grill hjá mömmu og pabba á Sigló.
Hjalti Valþórsson atvinnuflugmaður gerði einmitt það á síðasta föstudag og lenti í blíðskaparveðri á Siglufjarðarflugvelli. Móðir hans Anna Gilsdóttir tók a móti flugmanninum, syni hans Hilmi Hrafni og Þorbjörgu Eddu Björnsdóttur eiginkonu hans. Hjalti er meðlimur í flugklúbbnum Geirfugli og hefur klúbburinn yfir að ráða 8 flugvélum, meðal annars flugvélinni sem hann flaug hingað til Siglufjarðar. Hún er af gerðinni Socata TB-200 og er með einkennisstafina TF-MAX.

Anna, Hilmir Hrafn, Hjalti og Þorbjörg Edda


Athugasemdir

25.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst