Enginn ísbjörn, bara gabb

Enginn ísbjörn, bara gabb Enginn ísbjörn var á ferð norðan við Hofsós í dag líkt og fullyrt var á mbl.is. Maður sem sagður er vera Sigurður Guðmundsson,

Fréttir

Enginn ísbjörn, bara gabb

Allt í plati þarna
Allt í plati þarna
Enginn ísbjörn var á ferð norðan við Hofsós í dag líkt og fullyrt var á mbl.is. Maður sem sagður er vera Sigurður Guðmundsson, verslunarmaður á Akureyri, var á ferðalagi með hópi fólks og stillti upp, að talið er, uppstoppuðum birni.
Myndir voru teknar af birninum og tókst einhverjum að blekkja mbl.is. Fréttin þar varð til þess að uppi varð fótur og fit. Lögreglan lagði af stað og fjölmiðlar sömuleiðis. Í fyrstu var fullyrt á MBL að lögreglan á Sauðárkróki hefði staðfest að þarna væri ísbjörn á ferð og að menn frá lögreglunn væru komnir á staðinn. Það var síðar tekið út af vefnum og svo öll fréttin.

Fréttastofan hefur fengið staðfest að um ,,grín" var að ræða. Engin tilkynning um ísbjörn barst Neyðarlínunni og samskiptamiðstöð lögreglu fékk heldur engar tilkynningar.

Athugasemdir

23.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst