Nágrannar
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 07.08.2009 | 07:00 | | Lestrar 600 | Athugasemdir ( )
Þær Kolbrún Gunnarsdóttir og Jónína Pálsdóttir voru að dáðst að blómunum í hlíðum Stóra-Bola í vikunni.
Þær stöllur búa báðar í Reykjavík en eiga hús við Eyrargötu hér á Siglufirði. Jónína er ættuð frá Siglufirði, en amma hennar og afi, Björn og Nýa bjuggu í Skarðsdal. Hún var einnig í síld hér á sumrin á árum áður. Kolbrún er búin að dvelja hér í þrjá mánuði í sumar og eyðir öllum sínum fríum hér þrátt fyrir að eiga engar rætur að rekja til Siglufjarðar, hún hreinlega féll fyrir staðnum þegar hún kom hingað í heimsókn og keypti sér hús. Vinkonurnar eru ákveðnar í að flytja hingað þegar þær verða 67 ára, enda finnst þeim bærinn fallegur, mannlífið yndislegt og nágrannarnir frábærir. Er hægt að biðja um eitthvað meira!

Kolbrún og Jónína

Eyrargata 30 - Kolbrún og Ólafur maðurinn hennar vinna hörðum höndum að því að gera húsið upp

Eyrargata 31 - Húsið er glæsilegt á að líta eftir miklar endurbætur

Horft til vesturs eftir Eyrargötu

Athugasemdir