Paparnir, Gylfi Ægis og Bubbi Morthens í Allanum kl. 20.30 í kvöld!
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 15.10.2009 | 15:30 | | Lestrar 505 | Athugasemdir ( )
Papar & Gylfi Ægisson við sjávarsíðuna í október.
Sérstakur gestur Bubbi Morthens
Í október leggja Papar land undir fót og munu heimsækja landsbyggðina ásamt fríðu föruneyti. Á dagskránni er að halda tónleika sem hlotið hafa nafnið "lögin hans Gylfa, við sjávarsíðuna" en þar er skírskotað til laga Gylfa Ægissonar annars vegar og hins vegar til viðkomustaða Papanna sem eru allir við sjávarsíðuna. Hugmyndin er byggð á nýjustu geislaplötu Papanna "ég verð að dansa" þar sem frábærum lögum Gylfa Ægissonar eru gerð góð skil. Lögin af plötunni verða flutt auk þess sem einhverjir óvæntir og skemmtilegir hlutir verða dregnir úr pokahorninu. Þetta er fyrsta stóra tónlekaferð Papanna um landið og svo sannarlega kominn tími til. Papar hafa verið samofnir lífinu við sjávarsíðuna frá upphafi ferilsins þar sem þeir voru stofnaðir í Vestmannaeyjum, einni stærstu verstöð landsins.
Gylfi Ægisson með í för
Þegar talað er um að einhver sé samofinn lífi þeirra er sjóinn sækja og af honum lifa, þá er Gylfi Ægisson svo sannarlega þar á meðal. Það er Pöpum mikill heiður að hafa náð samkomulagi við Gylfa um að hann verði með í tónleikaferðinni. Hann mun vera með hljómsveitinni á sviði, segja áhorfendum frá tilurð laganna og segja sögur úr lífsbókinni sinni en Gylfi hefur marga fjöruna sopið og er dásamlegt að heyra hann segja frá ævintýrum sem hann hefur lent í.
Sérstakur gestur Bubbi Morthens
Til að setja punktinn yfir i-ið hafa Papar fengið sjálfan Bubba Morthens með í tónleikaferðina. Hann er svo samofinn landsbyggðinni og lífi fólks í sjávarplássunum að til hans var sérstaklega leitað í tilefni tónleikaferðarinnar. Pöpunum til mikillar gleði tók Bubbi vel í hugmyndina.
Papadansleikir í öllum landsfjórðungum á laugardögum í október
Lokahnykkur hverrar tónleikaviku er svo á laugardagskvöldum en þá verður haldinn Papadansleikur þar sem Gylfi Ægisson verður sérstakur gestur hljómsveitarinnar. Dansleikirnir verða haldnir á eftirtöldum stöðum og verða staðirnir auglýstir síðar.

Athugasemdir