Hraðflutningar

Hraðflutningar Guðrún Ingimundardóttir (Rúna) flutti búferlum í gær og fékk til liðs við sig fulltrúa frá Síldarminjasafni Íslands, Rauðku ehf,

Fréttir

Hraðflutningar

Haukur & Rúna
Haukur & Rúna
Guðrún Ingimundardóttir (Rúna) flutti búferlum í gær og fékk til liðs við sig fulltrúa frá Síldarminjasafni Íslands, Rauðku ehf, Fiskmarkaði Siglufjarðar og Tónlistarskóla Siglufjarðar.
Það tók innan við hálftíma að flytja búslóðina frá Suðurgötunni í ný híbýli að Nefstöðum, enda ekki lengi gert þegar margir hjálpast að. Veðrið var ekki eins og best verður á kosið, en þegar Húsvíkingurinn Rúna (verðandi Siglfirðingur) hafði samband við Hödda Júll. og vildi fresta flutningunum vegna veðurs þá tók hann það ekki mál, enda kippa Siglfirðingar sér ekki upp við smá hret. Myndir HÉR





Athugasemdir

24.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst