Ljóð og list
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 18.09.2009 | 19:00 | | Lestrar 460 | Athugasemdir ( )
Í dag klukkan 17 var opnuð í Ráðhúsinu sýning á málverkum úr Listasafni Fjallabyggðar og ljóða sem nemendur úr Grunnskóla Siglufjarðar hafa samið út frá verkunum, svo og sýning á munum og bókum frá Félagi um Ljóðasetur.
Á morgun klukkan 15 verða veitt verðlaun fyrir þrjú bestu ljóðin og við hvetjum bæjarbúa til að mæta og kynna sér hvað hin ungu hæfileikaríku ljóðskáld hafa ort. Hin fimm ára gamla Amalía flutti Heilræðavísur eftir sr. Hallgrím Pétursson með glæsibrag við opnunina. Hún er dóttir Þórarins Hannessonar ljóðskalds með meiru. Sýningin verður opin á morgun kl 15-18. Myndir HÉR Tengd Frétt HÉR

Þórarinn á mikið safn ljóðabóka og á sýningunni er um þriðjungur safnsins til sýnis

Athugasemdir