Fjör á fjölbraut

Fjör á fjölbraut Nýnemar við Framhaldsskólann á Siglufirði og Ólafsfirði fóru í svokallaða nýnemaferð ásamt nemendum Verkmenntaskólans á Akureyri. Farið

Fréttir

Fjör á fjölbraut

Nýnemar við Framhaldsskólann á Siglufirði og Ólafsfirði fóru í svokallaða nýnemaferð ásamt nemendum Verkmenntaskólans á Akureyri. Farið var snemma frá Siglufirði, og í Ólafsfirði bættust fleiri nemendur í hópinn. Ekið var fram í Eyjafjörð þar sem hópurinn var hristur saman í gamni og alvöru.
Fyrsta stoppistöðin var hjá Helga Þórssyni á Kristnesi þar sem hann sagði nýnemunum hitt og þetta um ýmislegt skemmtilegt, eins og t.d. landnámsmenn í Eyjafirði, íslenskar rímur og geitur. Smámunasafnið var heimsótt og loks stoppað að Hólavatni. Farið var í ýmsar þrautir og leiki og nesti borðað áður en rútan var tekin heim aftur. Sannarlega góður dagur í blíðskaparveðri og er skólastarfið í Fjallabyggð komið á fullt skrið.
Tengd frétt HÉR





Athugasemdir

25.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst