Nýtt hús við Aðalgötu á Siglufirði - Sannkallað sæluhús
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 06.06.2009 | 09:00 | | Lestrar 702 | Athugasemdir ( )
Sæluhúsið er nú komið á sinn rétta stað við Aðalgötu. Það eru liðin 45 ár síðan síðasta húsið var byggt við götuna, en það var einmitt Pósthúsið vestan megin við Sæluhúsið.
Þess má geta að bæði þessi hús eru byggð af Berg ehf. Tveir vörubílar með krana voru notaðir til að lyfta húsinu og koma því á réttan stað með dyggum stuðningi smiða hjá Berg. Húsið er hið glæsilegasta og passar vel inn í umhverfið. Eigendur jafnt sem smiðir geta vera stoltir af slotinu, og við hjá Sksigló.is óskum þeim innilega til hamingju með húsið. Framkvæmdastjóri Sæluhússins er Guðný Róbertsdóttir.
MYNDIR HÉR

Athugasemdir