Fánaborg við Þjóðlagasetur séra Bjarna Þorsteinssonar

Fánaborg við Þjóðlagasetur séra Bjarna Þorsteinssonar Nú er rétt rúm vika þar til Þjóðlagahátíðin á Siglufirði hefst. Norðurlandafánarnir eru dregnir að

Fréttir

Fánaborg við Þjóðlagasetur séra Bjarna Þorsteinssonar

Dr. Guðrún Ingimundardóttir starfsmaður Þjóðlagasetursins
Dr. Guðrún Ingimundardóttir starfsmaður Þjóðlagasetursins
Nú er rétt rúm vika þar til Þjóðlagahátíðin á Siglufirði hefst. Norðurlandafánarnir eru dregnir að húni dag hvern klukkan 13.00 við Þjóðlagasetrið.
Reyndar vantar Finnska fánann í safnið og er hér með auglýst eftir honum. Margt fólk hefur lagt leið sína í safnið síðustu vikurnar og eru brottfluttir Siglfirðingar duglegir að sækja safnið heim. Frakkar, Þjóðverjar, Austurríkismenn og Kanadamenn hafa einnig komið í heimsókn í sumar. Vert er að benda á að nýtt efni er nú á boðstólnum, svo sem myndband um ævi og störf séra Bjarna Þorsteinssonar og myndbönd með Steindóri Andersen og Ólínu Þorvarðardóttur þar sem þau kveða og syngja.
Safnið er opið alla daga vikunnar frá kl. 13.00 – 17.00 og eru dýrindis kleinur og ástarpungar á boðstólnum fyrir gesti og gangandi. Heimasíða Þjóðlagaseturs séra Bjarna Þorsteinssonar HÉR









Athugasemdir

25.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst