Fiskidagurinn mikli
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 11.08.2009 | 13:15 | | Lestrar 607 | Athugasemdir ( )
Fjölskyldudagurinn Fiskidagurinn mikli var haldinn hátíðlegur í Dalvíkurbyggð um helgina sem leið. Markmiðið með deginum er að bjóða öllum í fría fiski- og menningarveislu og að fólk hittist og eyði góðum degi saman.Fjöldi fólks lagði leið sína til Dalvíkur og voru eldri borgarar Siglufjarðar þar engin undantekning, en Kiwanisklúbburinn Skjöldur bauð þeim í dagsferð á Fiskidaginn mikla. Einnig var Flugminjasafn Íslands á Akureyri heimsótt og farið í kynnisferð til Víking Brugg þar sem boðið var að smakka á afurðum fyrirtækisins. Þátttaka var með ágætum og fóru 35 eldri borgarar í ferðina. Kiwanisklúbburinn Skjöldur þakkar öllum þátttakendum fyrir skemmtilegan dag. Fleiri myndir HÉR
Fiskidagurinn mikli

Sverrir Sveinsson

Kristveig og Lilla

Vinkonurnar Steinfríður Ólafsdóttir og Sigrún Jónsdóttir

Soffía, Berta og Guðný

Soffía, Berta, Raggi & Guðný
Fiskidagurinn mikli

Sverrir Sveinsson

Kristveig og Lilla

Vinkonurnar Steinfríður Ólafsdóttir og Sigrún Jónsdóttir

Soffía, Berta og Guðný

Soffía, Berta, Raggi & Guðný
Athugasemdir