Frábær Gospelmessa í Siglufjarðarkirkju

Frábær Gospelmessa í Siglufjarðarkirkju Þeir voru ekki sviknir tónlistarunnendurnir sem lögðu leið sína í Gospelmessuna í gær. Sigurður Ægisson

Fréttir

Frábær Gospelmessa í Siglufjarðarkirkju

Þeir voru ekki sviknir tónlistarunnendurnir sem lögðu leið sína í Gospelmessuna í gær. Sigurður Ægisson sóknarprestur hóf messuna að venju og sagði fjölmörgum messugestum að hið talaða orð yrði í minnihluta en söngur yrði í hávegum hafður.



Frá því á föstudagskvöldið hefur hinn nýstofnaði Gospelkór Siglufjarðar verið í ströngum æfingarbúðum undir stjórn sómafólksins Óskars Einarssonar, Hrannar Svansdóttur og Fannýjar Tryggvadóttur og er óhætt að segja að vel hafi tekist til því slíkar voru undirtektir messugesta.
Glæsilegt framtak hjá kirkjufólkinu og þeim kórfélögum sem lögðu æfingarbúðirnar á sig. Nú er bara að vona að framhald verði á.

Myndir HÉR

Óskar Einarsson



Hrönn Svansdóttir



Fanný Tryggvadóttir




Athugasemdir

24.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst