Fréttatilkynning - Umferðarkönnun
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 30.06.2009 | 17:30 | | Lestrar 262 | Athugasemdir ( )
Háskólinn á Akureyri, í samvinnu við Vegagerðina, mun standa fyrir umferðarkönnun á Ólafsfjarðarvegi, milli Dalvíkur og Ólafsfjarðar og á Siglufjarðarvegi við Ketilás, fimmtudaginn 2. júlí og laugardaginn 4. júlí n.k. Könnunin stendur yfir frá kl. 08:00 – 23:00 báða dagana.Tilgangur með könnuninni er að kanna umferðarmynstur á utanverðum Tröllaskaga yfir sumartímann og öðlast þekkingu á ferðavenjum einstaklinga á svæðinu Einnig fást upplýsingar um umferð á milli einstakra staða og landsvæða, sem síðar gætu nýst við almenna áætlanagerð. Um er að ræða hluta af rannsóknarverkefni um áhrif Héðinsfjarðarganga á samfélag og byggð. Framkvæmd umferðarkönnunarinnar verður með þeim hætti að allar bifreiðir, sem koma að könnunarstað, verða stöðvaðar og bílstjórar spurðir nokkurra spurninga.
Vonast er til að vegfarendur, sem leið eiga um könnunarstaðina, taki starfsmönnum Háskólans vel og jafnframt er beðist velvirðingar á töfum sem kunna að hljótast af þessum sökum. Fyrir hönd Háskólans á Akureyri, Þóroddur Bjarnason. P.S. Frekari upplýsingar veitir Sveinn Arnarsson í síma 662-1121

Athugasemdir