Fréttatilkynning frá Íslenska Gámafélaginu ehf

Fréttatilkynning frá Íslenska Gámafélaginu ehf Dagana 5.-8. nóvember næstkomandi munu ráðgjafar frá Íslenska Gámafélaginu heimsækja alla íbúa í

Fréttir

Fréttatilkynning frá Íslenska Gámafélaginu ehf

Dagana 5.-8. nóvember næstkomandi munu ráðgjafar frá Íslenska Gámafélaginu heimsækja alla íbúa í Fjallabyggð og veita faglega ráðgjöf og svara þeim spurningum sem kunna að koma upp varðandi breytingar á sorphirðu.
Áður verður búið að dreifa handbók um nýtt fyrirkomulag sorphirðu í Fjallabyggð. Mjög mikilvægt er að varðveita vel sorphirðuhandbókina. Hún veitir almennar upplýsingar um flokkun, hvernig kerfið virkar og aðrar gagnlegar upplýsingar. Til að fræðslan verði sem skilvirkust bendum við íbúum á að kynna sér bæklinginn áður en ráðgjafar Íslenska Gámafélagsins koma í heimsókn.

Einnig verður hægt að fá ráðgjöf í síma 577 5757 eða með því að senda tölvupóst á netfangið igf@igf.is.

Við hlökkum til að sjá þig,

Starfsfólk Íslenska Gámafélagsins



Athugasemdir

24.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst