Fréttatilkynning frá Sóttvarnalæknir og Almannavarnadeild RLS

Fréttatilkynning frá Sóttvarnalæknir og Almannavarnadeild RLS Hlutfallslega fleiri börn veikjast nú af inflúensuA(H1N1)v 2009 en í upphafi

Fréttir

Fréttatilkynning frá Sóttvarnalæknir og Almannavarnadeild RLS

Hlutfallslega fleiri börn veikjast nú af inflúensu
A(H1N1)v 2009 en í upphafi faraldursins

Langflest inflúensutilfelli hérlendis, undanfarna daga og vikur, greinast hjá börnum á aldrinum 0-9 ára. Þetta er marktæk breyting frá því í júlí og ágúst, þegar flestir sem veiktust voru á aldrinum 15-30 ára. Breytingin birtist skýrt í gögnum sem Guðrún Sigmundsdóttir, yfirlæknir hjá embætti sóttvarnalæknis, hefur tekið saman á grundvelli skráningar heilbrigðisþjónustunnar á inflúensulíkum einkennum.
Á sama tíma og inflúensan leggst hlutfallslega meira á börn en áður fækkar veikindatilfellum í aldurshópnum 15-30 ára. Sömu breytingu á aldursdreifingu inflúensusjúklinga má sjá hjá þeim sem eru með staðfesta inflúensu A(H1N1)v 2009 samkvæmt veirufræðideild Landspítala.

Fjarvistaskráning grunnskólanemenda í Mentor staðfestir sömuleiðis þessa fjölgun tilfella hjá börnum. Fjarvistum nemenda í grunnskólum landsins fjölgaði mjög í október.

Á reglubundnum símafundi fulltrúa almannavarna og heilbrigðiskerfisins í morgun komu fram ákveðnar vísbendingar um að inflúensufaraldurinn hefði mögulega náð hámarki á höfuðborgarsvæðinu, á Akureyri og víðar. Annars staðar á landsbyggðinni er ástandið sagt svipað og var í vikunni þar á undan en á stöku stað er faraldurinn hins vegar í sókn, til dæmis á Húsavík. Starfsmenn heilsugæslustöðva sjá víða glögg merki um að hlutfallslega fleiri börn veikist nú en áður.

•  Á Landspítala voru í morgun fjörtíu og þrír sjúklingar með inflúensuna, þar af ellefu á gjörgæsludeild. Átta voru lagðir inn vegna veikinnar en enginn var útskrifaður.

•  Á Sjúkrahúsinu á Akureyri eru  þrír inflúensusjúklingar þessa stundina, enginn þeirra á gjörgæsludeild.


Útlit fyrir að almenn bólusetning við inflúensunni geti hafist í síðari hluta nóvember
 

Horfur eru á að unnt verði að hefja almenna bólusetningu við inflúensunni A(H1N1)v 2009 fyrr en gert var áður ráð fyrir, þ.e.a.s. í síðari hluta nóvember í stað desember. Ástæðan er sú að meira berst af bóluefni til landsins næstu daga og vikur en reiknað var með í upphaflegum áætlunum.

Nú er búið að bólusetja yfir 20.000 af alls um 75.000 manns sem miðað er við að séu í skilgreindum forgangshópum bólusetningar samkvæmt tilmælum Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar, WHO. Fari svo sem horfir verður lokið að mestu við að bólusetja fólk í þessum forgangshópum um miðjan nóvember, þ.e.a.s. starfsfólk í heilbrigðisþjónustu, öryggisþjónustu og lykilhlutverkum af ýmsu tagi í opinberri stjórnsýslu, og sjúklinga með „undirliggjandi sjúkdóma“.

•  Engar fréttir hafa borist af alvarlegum aukaverkunum bólusetningar. Sumir hafa fengið þrota (væga bólgu) eða roða í húð á stungustað. Þetta er einfaldlega kröftug ónæmissvörun líkamans og jákvæð staðfesting á að bóluefnið sé öflugt og skilvirkt!
• Bráðabirgðaniðurstöður rannsókna á bóluefninu benda eindregið til þess að einn skammtur veiti hámarksvörn gagnvart inflúensunni. Sóttvarnalæknir telur því fullnægjandi að menn láti bólusetja sig einu sinni en tekur jafnframt fram að ef vísbendingar berist um annað í einhverjum tilvikum verði birtar upplýsingar eða tilmæli um að tilteknir hópar láti bólusetja sig í annað sinn.




Nánari upplýsingar:

Haraldur Briem
sóttvarnalæknir
sími 898 6008

Víðir Reynisson
deildarstjóri almannavarnadeildar,
sími 864 1759



Athugasemdir

24.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst