Frjálsi lífeyrissjóðurinn valinn besti lífeyrissjóður á Íslandi
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 09.12.2009 | 10:00 | | Lestrar 361 | Athugasemdir ( )
Hér á Siglufirði vinna 28 manns við skráningu iðgjalda, umsýslu samninga, breytingum á fjárfestingaleiðum, útgreiðslur og innheimtu fyrir hina ýmsu lífeyrissjóði. Frjálsi lífeyrissjóðurinn er þeirra á meðal og er þetta glæsileg viðurkenning fyrir alla sem að Frjálsa lífeyrissjóðnum koma.
Fjarvinnsla þessi byrjaði hjá Sparisjóði Siglufjarðar árið 2000 með lífeyrissjóðnum Einingu sem sameinaðist Frjálsa lífeyrissjóðnum árið 2004 og hefur svo sannarlega undið uppá sig og veitt fjölda fólks atvinnu. Oft er fjarvinnsla þessi nefnd þegar talað er um vel heppnaða fjarvinnslu úti á landi af ráðamönnum. Í dag er Lífeyrisþjónustan hér á Siglufirði að þjónusta a.m.k. tíu lífeyrissjóði.
Frjálsi lífeyrissjóðurinn var valinn besti lífeyrissjóður á Íslandi af fagtímaritinu Investment Pension Europe. Í umsögn dómnefndar kom m.a. fram að Frjálsa lífeyrissjóðnum hefði tekist að vernda hagsmuni sjóðfélaga í erfiðum markaðsaðstæðum með því að minnka áhættu sjóðsins í fjárfestingum en það fól m.a. í sér að auka hlutfall verðtryggðra ríkisskuldabréfa í eignasafni sjóðsins. Jafnframt vakti dómnefndin athygli á uppbyggingu sjóðsins og þeirri ákvörðun hans að auka gagnsæi.
Frjálsi lífeyrissjóðurinn hefur áður unnið IPE-verðlaun. Árið 2005 var sjóðurinn valin besti lífeyrissjóður Evrópu í flokknum Uppbygging lífeyrissjóða.

Athugasemdir