Gettu betur Æskó úrslit
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 18.12.2009 | 12:00 | | Lestrar 697 | Athugasemdir ( )
Úrslitakvöld spurningakeppninnar Gettu betur Æskó fór fram í gærkvöld. Þegar siglo.is bar að garði sátu krakkarnir í tröppunum og sungu jólalög við undirleik kennara úr Grunnskólanum og Tónskólanum, enda litlu jól. Áður en spurningakeppnin hófst voru veitt verðlaun fyrir Röskness og Fitness 2009-2010 og einnig piparkökuhúsakeppnina.
Einnig voru dregnir út fjórir keppendur sem tóku þátt í Röskness og Fitness og fengu þau vegleg verðlaun frá Siglufjarðar Apóteki og Siglósport. Til úrslita í spurningakeppninni kepptu liðin Gosarnir og Swingers en gaman er frá því að segja að liðin skiptust í stráka og stelpu lið að þessu sinni. Gosarnir sigruðu að þessu sinni og eru því Gettu betur Æskó meistarar. Rétt er að taka það fram að Swingers stóðu sig með miklum sóma og ekki má gleyma Sigmundi hinum óþreytandi Æskó-manni sem sá um keppnina frá A-Ö.

Lið Swingers.

Verðlaunahafar í yngri flokk kvenna í Röskness og Fitness.

Verðlaunahafar í yngri flokk karla í Röskness og Fitness.

Verðlaunahafar í eldri flokk kvenna í Röskness og Fitness en á myndina vantar Kattaliit.

Verðlaunahafar í eldri flokk karla í Röskness og Fitness.

Þessir krakkar fengu gjafir frá Siglufjarðar Apóteki og Siglósport en á myndina vantar Anítu.

Piparkökuhús Eyglóar og Kattaliit sigraði í piparkökukeppninni. Hér er Eygló með kennara sínum.

Sigmundur og hans fólk úr Gettu betur Æskó.

Það var góð stemming í salnum.

Jólasöngur í stiganum í efra-skólahúsi.

Það er ekki amalegt að hafa þessa kennara.

Athugasemdir