Getur þú orðið okkur að liði?
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 10.09.2009 | 14:05 | | Lestrar 460 | Athugasemdir ( )
Valló ehf. auglýsir eftir ljósmynd af skíðasvæðinu í Skarðsdal á Siglufirði. Myndin þarf að sýna skíðasvæðið í heild sinni. Fyrirhugað er að merkja skíðaleiðir eins og víða þekkist erlendis. Myndin þarf að vera í góðri upplausn og að sjálfsögðu tekin um vetur í góðu skyggni. Frekari upplýsingar í síma 699-5022. Einnig er hægt að senda mynd á sksiglo@sksiglo.is.
Athugasemdir