Grásleppuvertíðin hafin - veitir 600 sjómönnum atvinnu

Grásleppuvertíðin hafin - veitir 600 sjómönnum atvinnu Á fjórða tug grásleppubáta, allt frá Siglufirði að Vopnafirði, lögðu netin í morgun í

Fréttir

Grásleppuvertíðin hafin - veitir 600 sjómönnum atvinnu

Ljósmynd smabatar.is
Ljósmynd smabatar.is
Á fjórða tug grásleppubáta, allt frá Siglufirði að Vopnafirði, lögðu netin í morgun í blíðskaparveðri.  Mikill hugur er í veiðimönnum sem líta með töluverðri bjartsýni til vertíðarinnar. Á síðasta ári tókst að takmarka veiðina sem leiddi til mikillar eftirspurnar í lok vertíðar.   Við slíkar aðstæður hefst veiðitímabilið nú, flesta framleiðendur grásleppukavíars þyrstir í hrogn.Því er það undrunarefni að samningar um verð og veiðimagn, hafa ekki enn náðst við alla þá sem hófu veiðar í dag .  Það er brýnt að slíkri óvissu verði eitt sem fyrst, þar sem staða markaðarins gefur tilefni til áframhaldandi verðmætaaukningar til hagsbóta fyrir þá sem atvinnu hafa af veiðum og vinnslu grásleppu og grásleppuhrogna. Krafa veiðimanna nú er að greiddar verði 650 evrur fyrir hverja tunnu af söltuðum grásleppuhrognum. Gangi það eftir verður aflaverðmæti þeirra 8000 tunna sem ætlunin er að veiða um 700 milljónir.
Áætlanir gera ráð fyrir að 260 bátar stundi veiðarnar í ár og vertiðin veiti um 600 sjómönnum atvinnu.

Athugasemdir

15.ágúst 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst