Grunnnámskeið fyrir notendur stafrænna spegilmyndavéla (DSLR)

Grunnnámskeið fyrir notendur stafrænna spegilmyndavéla (DSLR) Námskeiðið er ætlað byrjendum og lengra komnum notendum á stafrænum spegilmyndavélum. (ss.

Fréttir

Grunnnámskeið fyrir notendur stafrænna spegilmyndavéla (DSLR)

Sveinn Hjartarson  ljósmyndari
Sveinn Hjartarson ljósmyndari
Námskeiðið er ætlað byrjendum og lengra komnum notendum á stafrænum spegilmyndavélum. (ss. Canon Eos 400D, Nikon D60 eða sambærilegar vélar). Kennt er hvernig á einfaldan hátt er hægt að taka enn betri myndir og hvað þarf að gera til að ná hámarks gæðum úr myndavélinni.
Farið er yfir stillingar á myndavélinni, menu og virkni takka. Kennd eru grunnatriði í ljósmyndatækni : Ljósop, hraði, ISO, WB, RAW skrá, dýptarskerpa, ljósmæling og fleira.

Farið er í grunnatriðin í flass notkun og mynduppbyggingu og margt fleira.

Námskeiðið verður tvö kvöld, þriðjudaginn 28. júlí og miðvikudaginn 29. júlí.
Kennt frá klukkan 20:00 til 22:00 að Gránugötu 15, 580 Siglufjörður
Gamla Ísafoldarhúsinu í Sal á 2. hæð.

Námskeiðið kostar 7.500.- Kr.

Námskeiðið er haldið af Sveini Hjartarsyni, Ljósmyndara og Sksigló ehf.

Skráning í síma 467-1550 á skrifstofutíma og einnig er hægt að senda póst á gunnlaugur@sksiglo.is og sksiglo@sksiglo.is





Athugasemdir

25.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst