Handverksfólk og vaskir víkingar
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 02.07.2009 | 18:00 | | Lestrar 391 | Athugasemdir ( )
Það er mikið um að vera á Siglufirði nú þegar Þjóðlagahátíðin er hafin. Í morgun stóðu yfir tvö námskeið, keðju- og skartgripagerð og víkinganámskeið fyrir börn.
Kennarar og nemendur í keðju- og skartgripagerð brugðu á það ráð að flytja námskeiðið út undir beran himin, enda var veðrið einstaklega gott. Krakkarnir á víkinganámskeiðinu voru um 18 talsins. Þau voru full tilhlökkunar og tilbúin í bardaga að Víkinga sið. Tveir vaskir víkingar komu alla leið frá Hafnarfirði og voru í fullum herskrúða þegar þeir mættu á svæðið. Fleiri myndir HÉR

Athugasemdir