Hárgreiðslustofa fyrir karlmenn og börn
Fréttablaðið, 24. sep. 2009 | Fréttir á landsvísu | 24.09.2009 | 10:00 | | Lestrar 717 | Athugasemdir ( )
Ég hef unnið lengi á herrastofum og hefur fundist vanta að karlmenn hafi eitthvað við að vera meðan þeir bíða og eru klipptir, segir Jón Hrólfur Baldursson, eigandi hárgreiðslustofunnar Rebel, sem einungis er ætluð karlmönnum og börnum.
„Okkur leiðist að sitja á biðstofum með kaffibolla og Séð og heyrt. Við erum alltaf hálfgerð börn þannig að börn og karlmenn passa vel saman á hárgreiðslustofum." Á stofunni er billjarð-borð, píluspjald, blöð um mótorsport og fleira sem Jón Hrólfur segir falla vel að hugðarefnum karlmanna.

Athugasemdir