Hofsós kemur skemmtilega á óvart

Hofsós kemur skemmtilega á óvart Sjómannadagurinn var haldinn hátíðlegur á Hofsósi. Veðrið var yndislegt og krakkarnir svömluðu í sjónum í hitanum.

Fréttir

Hofsós kemur skemmtilega á óvart

 Vesturfarasetrið séð úr Pakkhúsinu. Ljósmynd: Elín Þorsteinsdóttir
Vesturfarasetrið séð úr Pakkhúsinu. Ljósmynd: Elín Þorsteinsdóttir
Sjómannadagurinn var haldinn hátíðlegur á Hofsósi. Veðrið var yndislegt og krakkarnir svömluðu í sjónum í hitanum.
Dagskráin hófst kl. 13:00 við Sólvík með helgistund. Eftir hana var skemmtileg dagskrá á hafnarsvæðinu en þar má nefna koddaslag, dorgveiði, siglingu og kappróður barna í fiskikörum. Dagurinn endaði með kaffisölu Slysavarnarfélagsins Hörpu í Höfðaborg. Það er margt áhugavert á Hofsósi sem er einn elsti verslunarstaður landsins. Vesturfarasetrið er glæsilegt og til gamans má geta að Hjálmar Jóhannesson og Ágúst Stefánsson sáu um smíði setursins. Veitingastofan Sólvík er í notalegu umhverfi með útsýni yfir höfnina. Hún er í næsta húsið við Vesturfarasetrið og býður upp á alþjóðlegar veitingar á sanngjörnu verði. Blaðamaður Sksigló.is rakst á nokkra Siglfirðinga á göngu sinni um bæinn. Fleiri myndir HÉR

Systurnar Helga og Sigga nutu veðurblíðunnar (Dætur Salmanns Kristjánssonar)

Kormákur

Athugasemdir

24.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst