Hún skaut þeim vel æfðu, “ref fyrir rass”
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 11.12.2008 | 00:03 | | Lestrar 327 | Athugasemdir ( )
Íslandsmótið í parasveitakeppni í bridge 2008 fór fram í Síðumúla 37 Reykjavík helgina
29.og 30. nóvember sl. Það hefur ekki farið hátt en einn af sigurvegurum mótsins var Guðlaug
Márusdóttir82ja ára sem lenti í öðru sæti.
Guðlaug er búsett við Hvanneyrarbraut á Siglufirði.
Aðspurð sagðist hún hafa skroppið af gamni sínu á mótið, en hún hefði þó frekar lítið spilað bridge síðustu tvö árin.
Hinsvegar tekur hún reglulega þátt í félagsvist (sem sannir framsóknarmenn kalla jafnan framsóknarvist) með eldra fólkinu á hverjum fimmtudegi á Skálarhlíð, félagsheimili eldri borgara á Siglufirði.
Spilamennska hefur verið rík árátta í fjölskyldu hennar sem er stór, þar á meðal er Birkir Jón Jónsson alþingismaður innanborðs.
Hér er frétt Morgunblaðsins um keppnina:

Athugasemdir