Hvar eru fánarnir?
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 09.07.2009 | 17:30 | | Lestrar 493 | Athugasemdir ( )
Við lýstum fyrir nokkrum vikum eftir finnska fánanum fyrir Þjóðlagasetrið og það bar árangur og var honum flaggað í stað danska fánans um Þjóðlagahelgina.
Nú er hann horfinn ásamt fánum Íslands, Færeyja og Noregs.
Þegar Sigurður Hlöðversson ætlaði að taka niður fánana við Þjóðlagasetrið síðastliðinn laugardag, greip hann í tómt þar sem allir fánarnir voru horfnir, Rúna Ingimundardóttir upplýsti að Sigurður hefði ekki haft miklar áhyggjur af því og talið að annar starfsmaður setursins hefði tekið þá niður. En annað átti eftir að koma í ljós. Svo virðist sem einhverjir óprúttnir aðilar hafi tekið fánana ófrjálsri hendi. Sænski fáninn slapp að þessu sinni þar sem Vala stafsmaður setursins hafði fjarlægt hann fyrr um daginn, en hún þurfti að þjóta annað og gat því ekki tekið alla fánana niður. Hvarf fánanna uppgötvaðist ekki fyrr en það átti að flagga þeim aftur. Við viljum biðja þá sem tóku fánana að koma þeim aftur í réttar hendur. Svona fánar eru ekki ókeypis en stykkið kostar 10-12 þúsund krónur og er tjónið því 40-50 þúsund krónur, frekar dýrt spaug.

Athugasemdir