Hverjir muna ?

Hverjir muna ? Á síðu Ljósmyndasafns Siglufjarðar eru tugþúsundir ljósmynda. Flestar þeirra vekja upp horfnar minningar og vangaveltur.

Fréttir

Hverjir muna ?

Brunaæfing á Siglufirði
Brunaæfing á Siglufirði
Á síðu Ljósmyndasafns Siglufjarðar eru tugþúsundir ljósmynda. Flestar þeirra vekja upp horfnar minningar og vangaveltur.

Þessi mynd hér sem dæmi, var tekin seinnihluta síðustu aldar og er frá atburði sem margir þess tíma ungir og gamlir fylgdust með.

Þarna er Slökkvilið Siglufjarðar að störfum, ætti ef til vill frekar þarna á viðkomandi degi að kalla þá „Brunaliðið“ þeir voru nefnilega ekki á vettvangi til að slökkva eldinn, heldur til að hald honum í skefjum.

Þetta var æfingarvettvangur undir hadleiðslu þáverandi slökkviliðsstjóra Kristins Georgssonar, þar sem þeir sjálfir höfðu kveikt í húsinu samkvæmt tilskyldum leyfum eiganda og lögreglu.

Hvað eru margir sem muna hvaða hús þetta var og á hvaða ári það hvarf sjónum okkar ?

Sendið okkur línu með upplýsingum um myndir, eða það sem betra er SMELLIÐ á tengilinn neðan við stærri myndirnar á síðum safnsins og komið þannig upplýsingum til okkar


Athugasemdir

24.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst